Tíska og hönnun

Allir vilja hanna brúðarkjólinn

Ungstirnið Miley Cyrus hefur lítið rætt um brúðkaup sitt og leikarans Liam Hemsworth en turtildúfurnar eru byrjaðar að plana herlegheitin.

Miley sótti Marchesa-tískusýningu í New York í vikunni og neitar því ekki að hún myndi vilja gifta sig í kjól frá merkinu.

Miley er hress.
"Marchesa er klárlega einn af valkostunum. Kjólarnir eru unaðslegir," segir Miley.

Hún yrði ekki fyrsta fræga konan til að velja Marchesa því stjörnur eins og Blake Lively, Nicole Richie og Molly Sims hafa allar verið í kjólum frá merkinu á stóra deginum. Miley segir þó ekkert ákveðið með kjólinn.

Liam og Miley.
"Ég hef úr mörgu að velja og mikið af mismunandi fólki sem vill taka þátt í þessu. Ég á örugglega eftir að eiga þrjátíu brúðarkjóla!"

Dæmi um hönnun frá Marchesa.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.