Tíska og hönnun

Í íþróttabuxum á Óskarnum

Leikkonan Jennifer Lawrence er tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Silver Linings Playbook. Hún gæti komið á óvart í fatavali á stóra kvöldinu.

"Ég ætla að vera í íþróttabuxum," grínaðist Jennifer við blaðamenn á hádegisverðarsamkomu á vegum Óskarsins.

Hæfileikarík á uppleið.
"Ég er búin að vera að hugsa þetta. Ég er ekki búin að ákveða neitt. Ég ætla allavega að vera í tísku í þetta sinn," segir Jennifer. Hún ætlar að reyna að plata foreldra sína, Gary og Karen, með á rauða dregilinn.

"Þau eru svo róleg. Þau ná þessu ekki alveg."

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.