Tíska og hönnun

Best klæddu konur vikunnar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Stjörnurnar hafa í nógu að snúast þessa dagana, enda ekki þverfótað fyrir tískuvikum og verðlaunahátíðum. Það er alltaf gaman að sjá hvernig fólk er klætt við slík tilefni. Lífið tók saman nokkur skemmtileg lúkk.

Taylor Swift á verðlaunaafhendingu í Madrid. Hún hlýtur að vera búin að fá sér nýjan stílista ef marka má kjólana sem hún hefur klæðst á rauða dreglinum upp á síðkastið.
Rússneski tískublaðamaðurinn Miroslava Duma er alltaf óaðfinnanleg. Hér er hún á tískuvikunni í París.
Jessica Alba var stórglæsileg í svörtu frá toppi til táar á tískuvikunni í París
Alexis Broderick og Sarah Jessica Parker báðar í blómakjólum á listaopnun í New York.
Fatahönnuðirnir Vivienne Westwod og Stella McCartney.
Kate Bosworth er með einstakan stíl. Hún sást í þessu dressi frá Calvin Klein í partýi á dögunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.