Forstjóri Nissan segir tapaða hlutdeild bara hiksta 15. janúar 2013 22:46 Nýr Altima kemur brátt, sem og Pathfinder og Sentra
Nissan ætlar að ná 10% markaðshlutdeild í Bandaríkjunum árið 2016. Honum er sjaldan orðavant forstjóra Nissan, Carlos Ghosn þó svo að Nissan hafi tapað markaðshlutdeild í Bandaríkjunum og að Nissan stefni ótrautt að 10% markaðshlutdeild þar árið 2016. Hún féll úr 8,2% 2011 í 7,9% í fyrra. Það er reyndar fyrsta árið frá 2006 sem fyrirtækið tapar hlutdeild þar vestra. Nissan og lúxusmerki þeirra Infinity seldi 1,14 milljón bíla í Bandaríkjunum í fyrra. „Aðeins eitt ár með tapaðri hlutdeild er eins og og nettur hiksti og ég hefði fyrst áhyggjur ef það gerðist tvö ár í röð", sagði Ghosn. Ghosn nefndi tveir helstar ástæður fyrir lækkaðri markaðshlutdeild. Nokkrir af bílum Nissan sem til sölu voru hefðu verið að enda sitt skeið og nýjar kynslóðir þeirra litu brátt dagsins ljós, svo sem Altima, Pathfinder og Sentra. Einnig það að japanskir keppinautar þeirra hefðu verið lengur að jafna sig en Nissan eftir jarðskjálftann stóra 2011 og því hefðu þeir notið meiri vaxtar 2012 fyrir vikið.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent