Lífið

Þjáðist af morgunógleði

Megan fox
Megan fox
Leikkonan Megan Fox eignaðist sitt fyrsta barn þann 27. september síðastliðinn. Hún segist hafa þjáðst af mikilli morgunógleði fyrstu mánuði meðgöngunnar.

„Þegar ég var gengin tvo mánuði var ég mjög veik. Mér var flökurt og ég þjáðist af slæmri morgunógleði. Þetta varð svo slæmt að ég hélt að ég gengi með vampírubarn eins og þetta úr Twilight. Mér leið eins og Bellu og var með kaldan svita stanslaust, ég var ekki viss hvort þetta væri að gerast vegna þess að mig skorti vítamín. Mér fannst bara eins og þetta væri ómennskt," sagði leikkonan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.