Kobe Bryant í metabækurnar Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 7. desember 2012 06:00
Kobe Bryant náði merkum áfanga í NBA-deildinni í fyrrakvöld þegar hann skoraði sitt 30.000 stig í deildinni frá upphafi. Bryant, sem er 34 ára gamall, er sá yngsti sem kemst yfir 30.000 stig í sterkustu körfuboltadeild heims. Kareem Abdul-Jabbar er stigahæsti leikmaður allra tíma, en hann skoraði alls 38.387 stig á 20 ára ferli í deildinni. Karl Malone kemur þar næstur með 36.928 stig, en hann lék í 19 ár í deildinni. Michael Jordan er þriðji í röðinni með 32.292 stig. Wilt Chamberlain skoraði 31.419 stig á 14 ára ferli. Bryant er sá yngsti sem kemst yfir 30.000 stigin. Chamberlain var 35 ára, Abdul-Jabbar og Malone voru báðir 36 ára og Jordan var 38 ára. Þrír leikmenn sem eru á lista yfir 20 stigahæstu leikmenn allra tíma í NBA-deildinni eru enn að skora stig; Bryant, Kevin Garnett og Dirk Nowitzki. „Satt best að segja veit ég ekki af hverju ég legg enn hart að mér eftir 17 ár í deildinni. Ég hef enn gaman af því sem ég er að gera, og ég er stoltur að geta sagt að ég legg mig alltaf fram við það sem ég geri," sagði Bryant, sem hefur leikið með Los Angeles Lakers frá því að hann kom inn í NBA-deildina árið 1996. Bryant hefur skorað tæplega 28 stig að meðaltali í leik í vetur en á ferlinum hefur hann skorað 25,4 stig að meðaltali í leik. Hann er rétt rúmlega 8.000 stigum frá metinu sem er í eigu Kareem Abdul-Jabbar, sem skoraði 38.387 stig á 20 ára ferli sínum. Ef Kobe Bryant heldur meðaltali sínu næstu fjögur árin á hann möguleika á að verða stigahæsti leikmaður allra tíma í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira