Oftast rifinn úr að ofan Freyr Bjarnason skrifar 24. nóvember 2012 09:00 Gísli Pálmi segist eingöngu vera á samningi hjá sjálfum sér, og kannski lögreglunni líka. Mynd/Vilhelm
Gísli Pálmi er einn heitasti ungi rappari landsins, ef ekki sá allraheitasti. Hann spilaði á Þýska barnum á Airwaves-hátíðinni þar sem hann reif upp stemninguna að mati gagnrýnanda Fréttablaðsins. „Það var allt vitlaust," sagði í dóminum. „Það sem gerir Gísla Pálma svona vinsælan er sennilega fyrst og fremst hvað hann er orkumikill og skemmtilegur. Það er mikill húmor í sviðstöktunum hjá honum og textunum, sem fjalla oft um hann sjálfan." Aðspurður segist Gísli Pálmi vera mjög ánægður með tónleikana og þá stemningu sem myndaðist. „Þetta var klikkað, geðveikt. Sérstaklega miðað við hvað það voru margir útlendingar þarna og fólk sem hafði aldrei heyrt þetta áður. Það myndaðist þvílík stemning þarna." Meðal áheyrenda var Björk Guðmundsdóttir og fleiri kunnir einstaklingar. Það stressaði hann ekkert upp. „Ég frétti að það hefði verið mikið af fólki þarna og ég sá nokkra þegar ég labbaði inn. Þetta er bara heiður og gaman að því." Margir útsendarar frá erlendum plötufyrirtækjum mæta á Airwaves-hátíðina og segist Gísli hafa rætt við einn eða tvo en óvíst er hvort eitthvað komi út úr því. En hvernig er það, ertu heitasti rapparinn á landinu? „Ég veit það ekki, það er erfitt að segja frá því sjálfur en ég er með"etta."Frá tónleikum Gísla á Airwaves. Mynd/Silja MaggTöluvert er um að aðrir rapparar og tónlistarmenn hringi í Gísla Pálma og óski eftir samstarfi. „Það kemur mjög mikið fyrir að fólk úr öllum stéttum og stefnum reyni að koma í samstarf. Ég er opinn fyrir öllu en það væri meira komið af svoleiðis ef ég væri mjög „líbó" á það. Ég er svolítið „pikkí" og mér finnst fínt að gera þetta sjálfur." Gísli Pálmi er sonur athafnamannsins Sigurðar Gísla Pálmasonar, en hefur að eigin sögn ávallt unnið fyrir sínu og ekki notið fjárhagslega góðs af fjölskyldutengslum sínum. Hann hefur verið duglegur við að búa til myndbönd við lögin sín og setja á Youtube. Þar öðlaðist hann fyrst vinsældir með laginu Set mig í gang og því hlýtur myndbandagerðin að skipta hann töluverðu máli. „Ég leikstýri öllu en frændi minn og vinur, Árni Geir, sér um alla tæknina," segir hann. „Það er alltaf gaman að skoða tónlist ef það er myndband undir. Lagið verður ekkert endilega betra en það er einhver fílingur við þetta."Áttu einhverja áhrifavalda í tónlistinni? „Það eru engin sérstök nöfn en ég hlusta mjög mikið á alls konar tónlist. Að mestu leyti hip hop, dubstep og smá elektróník." Gísli Pálmi er duglegur við að fara úr að ofan á tónleikum, sem er kannski ekki skrítið enda vel „köttaður" og með nóg af húðflúrum á líkamanum. „Ég er oftast rifinn úr að ofan eða þá grátbeðinn um það. Þetta er bara einhver fílingur. Þau vilja sjá kallinn. Ætli þetta komi ekki mikið frá Set mig í gang [myndbandinu sem sjá má hér fyrir ofan]." Aðspurður segir hann fyrstu plötuna ekki vera á leiðinni í bráð. „Það er einhver tími í það. Það verður alla vega ekki fyrir þessi jól," segir rapparinn, sem hefur aldrei skrifað undir plötusamning. „Ég er bara á samningi hjá sjálfum mér og hjá lögreglunni líka."
Menning Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira