Sigtaði út á Ægissíðu Freyr Bjarnason skrifar 21. nóvember 2012 10:00 ný plata Björk Guðmundsdóttir hefur sent frá sér plötuna bastards sem hefur að geyma endurhljóðblönduð lög. mynd/Warren Du Preez & Nick Thornton Jones Wellhart/One Little Indian Björk
Guðmundsdóttir hefur sent frá sér plötuna Bastards sem hefur að geyma endurhljóðblönduð lög af Biophiliu sem kom út í fyrra. Meðal þeirra sem eiga lög á plötunni eru Sýrlendingurinn Omar Souleyman, These New Puritans, Hudson Mohawke, Current Value, 16-bit, og Matthew Herbert. Þeir þrír síðastnefndu tóku einnig þátt í gerð Biophiliu. „Þegar ég gerði fyrstu remix-plötuna mína var ég að hanga í búðum í London sem voru bara með plötur fyrir plötusnúða. Svo þegar ég fór í heimsókn til vina minna vissu þeir kannski ekkert af þessari tónlist. Þannig að ég gaf út remixplötu, The Best Mixes from the Album Debut for All the People Who Don't Buy White Labels, sem var kannski meira fyrir fólk sem fer í venjulegar geisladiskabúðir," segir Björk. „Það er svipað með þessa plötu. Öll þessi mix eru þegar komin út, þú getur halað þau niður af netinu, en hún er fyrir fólk sem er kannski ekki mikið að gera það. Ég setti saman „playlista", fór að hjóla á Ægissíðunni, hlustaði á þetta nokkrum sinnum og sigtaði úr 40 mixum niður í tólf." Tónlistarverkefnið Biophilia leit dagsins ljós fyrir rúmu ári. Þar bjó Björk til tíu mismunandi tölvuprógrömm fyrir tíu mismunandi lög, byggð á tíu mismunandi náttúruöflum. Þau voru gefin út sem „öpp" fyrir iPhone og iPad. Verkefnið teygði sig út til skóla, bæði í Reykjavík, New York, Manchester og Buenos Aires, þar sem Björk dvaldi í mánuð í senn, hélt tónleika og hafði yfirumsjón með verkefninu. Aðspurð segist hún mjög ánægð með hvernig til hefur tekist. „Þetta var kannski hugrakkasta ævintýrið sem ég hafði farið út í, að búa til tíu „öpp" en þetta var dálítið eftir þeirri hugmynd sem ég hef átt frá því ég var krakki, að stofna tónlistarskóla. Það sem hefur komið kannski mest á óvart er kennsluefnið. Það er komið í námsskrá hjá miðskóla í Reykjavík næstu þrjú árin og svo hefur New York tekið þessu opnum örmum. Í raun snýst Biophilia um að taka tónlistarkennslu og færa hana úr bóklegu formi yfir í verklegt," greinir Björk frá og bætir við að til standi að búa til vefsíðu þar sem allt námsefnið frá borgunum fjórum verður fáanlegt ókeypis. Á næsta ári stendur til að halda áfram með Biophilia-verkefnið í París, San Francisco og Tókýó. Á einum mánuði verða ókeypis „app"-námskeið fyrir krakka í sama húsnæði og tónleikarnir verða haldnir. „Við fáum borgirnar til að borga undir krakkana en við gefum okkar vinnu. Okkar stefna er að koma út úr þessu á núlli." Nú styttist óðfluga í jólin. Ætlar Björk að vera á Íslandi um hátíðirnar? „Ég hef eytt öllum jólunum á Íslandi, nema einum eða tveimur og mér fannst þau alveg hrikaleg. Ég hef alltaf verið helminginn af árinu á Íslandi og læt þá lítið fyrir mér fara. Síðustu fimm árin, frá ágúst til janúar, hef ég verið hérna því dóttir mín [Ísadóra] er í skóla hérna. Svo er hún í skóla í Brooklyn frá janúar til júní. Við ákváðum að skipta þessu á milli landanna því við gátum ekki ákveðið okkur foreldrarnir. Ég gat ekki hugsað mér að vera í New York allt árið og hann [listamaðurinn Matthew Barney] ekki hér, þannig að við hittumst í miðjunni."
Björk Menning Tengdar fréttir Björk fór til sama skurðlæknis og Adele Þurfti að þegja í þrjár vikur og gekk um Reykjavík með spjald um hálsinn til að skrifa á. "Þetta er eiginlega rokkstjarna raddbandaskurðlækna og það gekk rosalega vel," segir Björk. 21. nóvember 2012 16:30 Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Sjá meira
Björk fór til sama skurðlæknis og Adele Þurfti að þegja í þrjár vikur og gekk um Reykjavík með spjald um hálsinn til að skrifa á. "Þetta er eiginlega rokkstjarna raddbandaskurðlækna og það gekk rosalega vel," segir Björk. 21. nóvember 2012 16:30