Lífið

Vill ástina að eilífu

vill meiri ást Taylor Swift leitar að hinni einu sönnu ást.nordicphotos/getty
vill meiri ást Taylor Swift leitar að hinni einu sönnu ást.nordicphotos/getty
Taylor Swift óttast að hún muni aldrei enda í ástarsambandi sem getur varað að eilífu. Hin 22 ára söngkona, sem hefur verið með John Mayer og Jake Gyllenhaal, telur að erfitt geti verið að viðhalda töfrunum í samböndum.

„Fiðrildin í maganum, dagdraumarnir og ástin. Mér þykir svo vænt um þetta allt saman en ég óttast að þetta hverfi einn góðan veðurdag. Ég hef aldrei verið í löngu ástarsambandi. Þau byrja alltaf og enda svo," sagði Swift við The Guardian. E

innig segist hún ekki vera hrædd við að eldast og fá hrukkur. Hún leggur meiri áherslu á að vera ung í anda. „Við missum stundum tengslin við barnið í sjálfum okkur. Mér er sama þótt ég verði ekki ung að eilífu en ég vil halda áfram að vera ung í anda."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.