Sagðist vita hver myrti Palme 30. ágúst 2012 00:30 Hans Kristian og Eva Rausing Sænska lögreglan ætlar til London að yfirheyra Hans Kristian Rausing.nordicphotos/AFP „
Ekki gleyma að rannsaka þetta ef ég dey skyndilega," skrifaði Eva Rausing í tölvupósti til sænska blaðamannsins Gunnars Wall. Svo bætti hún við: „Bara grín, vona ég!" Þetta sagði hún í júní á síðasta ári eftir að hafa trúað Wall fyrir því að eiginmaður hennar, sænski auðkýfingurinn Hans Kristian Rausing, hefði fyrir mörgum árum komist að því hver stóð fyrir morðinu á sænska stjórnmálamanninum Olof Palme, sem var skotinn á götu úti í Stokkhólmi árið 1986. Hún fullyrti að þekktur sænskur kaupsýslumaður hefði talið Palme ógna viðskiptahagsmunum sínum og látið myrða hann. „Ég held að ég viti hvar morðvopnið er falið," sagði hún. Eva Rausing dó síðan skyndilega í sumar á heimili sínu í London. Eiginmaður hennar, sænski auðkýfingurinn Hans Kristian Rausing, var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að láta lík hennar liggja óhreyft vikum saman undir fatahrúgu í svefnherbergi þeirra þangað til það fannst. Þau höfðu bæði lengi verið háð fíkniefnum. Sænska dagblaðið Expressen fullyrðir að Eva Rausing hafi haft samband við sænsku lögregluna strax árið 2010, en grunur hennar hafi ekki þótt trúverðugur. Nú hyggst sænska lögreglan kanna betur hvað hæft er í þessu og ætlar að yfirheyra Hans Kristian Rausing. Það verður gert í London. - gb
Morðið á Olof Palme Svíþjóð Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar Sjá meira