Tíska og hönnun

Ekki hrifinn af Bundchen

David Gandy segist ekki hafa gaman af því að vinna með Gisele Bundchen.
David Gandy segist ekki hafa gaman af því að vinna með Gisele Bundchen. nordicphotos/getty
Karlfyrirsætan David Gandy hefur barist ötullega fyrir launajöfnuði innan fyrirsætubransans, en kvenfyrirsætur fá að jafnaði töluvert hærri laun en karlfyrirsætur. Að auki segir Gandy að sumar ofurfyrirsæturnar séu hortugar og erfiðar að vinna með.

„Mér semur ekki vel við Gisele Bundchen. Við rífumst mikið og finnst ekki gaman að vinna með hvort öðru. Við erum vissulega heppin með útlit en við björgum ekki mannslífum með starfi okkar og mér mun aldrei semja við manneskju sem telur sig betri en annað fólk. Mitt ráð til upprennandi fyrirsæta er einfalt: Ekki ofmetnast þrátt fyrir velgengi,“ sagði Gandy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.