Mikilvægi dótakassans Sigga Dögg skrifar 28. apríl 2012 21:00 Ég fór í vettvangsferð í vikunni. Markmiðið var að kanna vöruúrvalið og þjónustuna í kynlífstækjaverslunum. Kynlífstæki eru ekki eingöngu leikföng unga fólksins sem horfir á klám, því tækin geta aðstoðað þá sem aldrei hafa fengið fullnægingu og einnig þeim sem geta ekki fullnægt sér sjálfir, t.d. vegna fötlunar eða sjúkdóma. Í góðum dótakassa má því finna mikla hagræðingu með því að upplifa fullnægingu og í því að stytta fullnægingartíma, enda er það meðal annars ástæða þess að tólin voru fundin upp fyrir aldamót seinustu aldar. Ef ég ætti að taka til byrjendadótakassa þá myndi hann innihalda: smokka, sleipiefni, egg, titrara, typpahring og olíu. Það skiptir ekki máli hvort þú sért stelpa með stelpu, strákur með stelpu eða strákur með stráki. Þetta dót virkar á alla kanta. Þessir hlutir væru ágætis byrjun á dótasafni og svo mætti prufa sig áfram og bæta við í kassann eftir löngun. Hlutirnir eru mjög misjafnir í gæðum og sleipiefni er ekki það sama og sleipiefni. Því þarf oft að prufa sig áfram með þau. Það á að vera hægt að biðja um prufur í búðunum og endilega nýttu þér það. Þá er titringur missterkur eftir eggjum og titrurum, svo fáðu að prófa tækin. Sumir vilja meira en aðrir minna. Titrarar eru oft útbúnir mörgum stillingum, svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Var ég kannski að lýsa aðstæðum sem innan við eitt prósent þjóðarinnar gætu hugsað sér að vera í? Er það að fara og kaupa sér kynlífstól og gera gæðasamanburð ekki eins og að máta þægilega skó í verslun? Ég vann í kynlífstækjaverslun samhliða námi mínu í Ástralíu. Sú búð lagði áherslu á að þjónusta viðskiptavinina og láta þeim líða vel. Í því fólst ráðgjöf um val tóla og heimsending þeirra. Þú einfaldlega hringdir í búðina eða sendir tölvupóst og tilgreindir hvað þig langaði að prufa og svo var það okkar sérfræðinganna að finna eitthvað við hæfi. Svona þjónustu vantar hér á Íslandi. Ég ræddi þetta um daginn á Hrafnistu þegar ég var með fyrirlestur þar, en kynlífstól eru kjörin viðbót í kynlífsflóru eldri borgara. Í Ástralíu er ráðgjöf um kynlífstæki hluti af starfi margra kynfræðinga, en svo virðist ekki vera hér. Enda eru fullnægingar svo mikið einkamál, eða hvað? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigga Dögg Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun