Tíska og hönnun

Forynja og Þórunn Antonía með markað í dag

Þórunn Antonía. Mynd/Anton
Þórunn Antonía. Mynd/Anton
Vinkonurnar Sara María og Þórunn Antonía standa fyrir skemmtilegum markaði á Laugaveginum í dag. Sara María hannar undir merkinu Forynja og ætlar að opna vinnustofuna sem er í bakhúsi við Laugaveg 39. Þar verða til sölu bolir, kúlukjólar, "ovesized" bolir, bolero, treflar, leggings og fleira frá Forynju. Einnig verður Þórunn Antonía með til sölu vintage-kjóla og helling af spennandi fötum sem hún hefur safnað að sér í gegnum árin sem fyrir ýmis konar tónlistar- og sjónvarpsframkomur. Þá verður Þórunn að sjálfsögðu með pennann á lofti til að árita nýju plötuna sína Star-Crossed. Húsið opnar klukkan 15 og æsingurinn stendur til um klukkan 20. Til að komast í bakhúsið er gengið inn um portið á milli Aftur og kaffihússins Litli bóndabærinn. Hægt er að kynna sér málið nánar og skoða fleiri myndir á Facebook-síðu markaðarins.
Bolir og kjóll frá Forynju.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.