Tíska og hönnun

Linda Björg bætir við hönnunarlínu sína

Linda Björg situr ekki auðum höndum. Nú fást náttföt, sloppar og ilmkerti sem hún hannaði vestan hafs og á Íslandi.
Linda Björg situr ekki auðum höndum. Nú fást náttföt, sloppar og ilmkerti sem hún hannaði vestan hafs og á Íslandi.
Íslenska hönnunarfyrirtækið Scintilla í eigu Lindu Bjargar Árnadóttur sem er hönnuður og fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ hefur bætt við nýjum spennandi vörum í hönnunarlínu fyrirtækisins sem eru nú þegar til sölu á fjölda vefverslana sem selja heimilisvörur í Bandaríkjunum.

Fyrirtæki Lindu, sem hannaði til að byrja með textíllínu fyrir heimili, hefur stækkað hratt á skömmum tíma og nú hefur hún sett á markað margskonar heimafatnað svo sem náttföt og sloppa. Þá hefur Linda einnig búið til þrjár gerðir af ilmkertum sem hún þróaði út frá vestfirksri náttúru.

Scintilla hefur síðastliðin tvö ár unnið að verkefninu "Scintilla scented textiles"sem fékk styrk frá Tækniþróunarsjóði árið 2010.

Scintilla vörurnar fást í verslununum Spark design space, Kraum, ATMO, Rammagerðinni og Kronkron.



Sjá meira á vefsíðuðunni Scintilla.com.

Scintilla hefur þróaði þrjá ilmi út frá áhrifum frá vestfirskri náttúru og heita þeir "Wilde thyme and blueberries", "Rain and deep blue water" og "West winds and silent sands". Nú síðast lét Scintilla framleiða ilmkerti með þessum ilmum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.