Vandamálið leyst 13. nóvember 2012 13:18 MYND/VALLI
Íslensk hönnun Sverrir Ásgeirsson vöruhönnuður var orðinn þreyttur á snúruflækjum og týndum símum heima hjá sér og hannaði sniðuga hirslu. Sýna í boxinu Sverrir Ásgeirsson og Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuður sýna tvær útgáfur af nýjum skáp á föstudaginn á vinnustofu sinni að Laugaveg 168. Sniðug Hirsla Níu innstungur er að finna innan í skápnum og því geta mörg hleðslutæki átt sinn stað í skápnum. Það eru níu innstungur inni í skápnum og pláss fyrir hleðslutæki og snúrur. Skúffa er undir lykla og fleira og einnig hilla. Týndir símar og hleðslutæki og snúruflækjur voru ákveðið vandamál heima hjá mér og þannig kviknaði hugmyndin," segir Sverrir Ásgeirsson vöruhönnuður en næsta föstudag bjóða þeir Stefán Pétur Sólveigarson á opnunarhóf á vinnustofu sinni, Boxinu, þar sem þeir sýna tvær útgáfur af veggskáp. Sverrir frumsýndi skápinn á samsýningu Félags vöruhönnuða á HönnunarMars fyrir tveimur árum en segir skápinn mikið breyttan síðan þá. "Við Stefán Pétur höfum tekið hann í gegn, einfaldað hann og bætt og útfært hann á tvo vegu. Önnur útgáfan er úr eik og hin úr svörtu MDF. Svarta útgáfan er minni og einfaldari og í henni er ekki skúffa heldur einungis hilla," segir Sverrir og Stefán bætir við að vandamálið með týnda síma og snúrur þekki allir að heiman. Myndavélar, lyklar og hleðslutæki séu sjaldnast þar sem við höldum að þau séu þegar á að grípa til þeirra. "Þetta hafði ekki verið leyst á fallegan hátt fannst okkur. Skápurinn færir okkur líka aftur í tímann þegar landlínusíminn átti sinn ákveðna stað á heimilinu. Í skápnum er nú kominn staður fyrir síma, myndavélar og spjaldtölvur og fleiri rafmagnstæki sem er að finna á nútímaheimilum." Sverrir og Stefán útskrifuðust báðir frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og hafa deilt vinnustofu síðan. "Við höfum unnið nokkur verkefni saman gegnum tíðina og höfum komið okkur upp ágætis verkstæði hér í Boxinu," segir Sverrir. "Ætlunin er að koma jafnvel út línu húsgagna í þessum dúr í samvinnu. Við smíðum skápinn sjálfir og til að byrja með mun hann fást hér hjá okkur en við erum að vinna að því að koma honum í sölu verslanir." Skápurinn verður sýndur á föstudaginn 16. nóvember í Boxinu, Laugavegi 168, klukkan 16. MYND/VALLI
HönnunarMars Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira