Tíska og hönnun

Íslensk stúlka gerir góða hluti í módelbransanum

Smelltu á mynd til að skoða myndaalbúmið.
Smelltu á mynd til að skoða myndaalbúmið.
Nafn: Birgitta Ósk Pétursdóttir.

Aldur: 19 ára.

Heimabær: Fædd og uppalin í Keflavík með foreldrum sínum til 13 ára aldurs og flutti síðan til Spánar með fjölskyldunni.

Nám: Stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð.

"Ég er að vinna hjá spænskri módelskrifstofu hérna á Spáni. Áður starfaði ég hjá Elite á Íslandi en ég ákvað að taka starfið skrefinu lengra í módelbransanum og sækja í meiri vinnu sem ég hef fengið," segir Birgitta sem ákvað að taka sér árs frí eftir stúdentsprófið til að freista gæfunnar í fyrirsætubransanum úti í heimi áður en hún fer í háskóla.

"Á þessum myndum var ég bókuð í myndatöku fyrir tíu blaðsíður og forsíðumynd framan á blaði sem er svona "luxury tímarit" og ber nafnið Outstanding magazine. Þetta er alþjóðlegt blað sem dreifist um ýmis lönd í Evrópu og til mið austur landa."

"Ég auglýsti föt og skartgripi fyrir þekkta hönnuði og var máluð af þekktum förðunarmeistara hér á Spáni sem heitir Mauro Saccocini – hann vinnur fyrir Chanel."

"Ég nýt mín best með fjölskylduna nálægt mér," segir Birgitta að lokum.

"Þetta var langur og erfiður vinnudagur Ég vaknaði klukkan 6 um morguninn. Síðan stuttu eftir hádegið byrjaði myndatakan og ég var búin klukkan 11 um kvöldið."
"Þrátt fyrir langan vinnutíma var þetta mjög skemmtilegt. Ég fór á framandi staði og hitti æðislegt fólk."
Birgitta í vinnunni.
Ekki slæmt vinnuumhverfi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.