NBA mun sekta fyrir leikaraskap í vetur 4. október 2012 12:15 Það er ekki í boði að kasta sér í gólfið í vetur.
NBA-deildin hefur stigið áhugavert skref sem margir vilja sjá í öðrum íþróttum. Deildin ætlar að fara að sekta leikmenn fyrir leikaraskap og ítrekuð brot enda í leikbanni. Leikaraskapur hefur farið mikið í taugarnar á forráðamönnum deildarinnar, sem og stuðningsmönnum, og nú er nóg komið. NBA-deildin hyggst nýta sér myndbandsupptökur við að sekta menn. Við fyrsta brot fá leikmenn aðvörun. Annað brot er sekt upp á 616 þúsund krónur, þriðja brot sekt upp á 1,2 milljónir króna. Leikmenn þurfa að greiða 1,8 milljónir fyrir fjórða brot og 3,7 milljónir fyrir fimmta. Sjötta brot mun líklega vera leikbann. "Það er ekkert pláss fyrir leikaraskap í okkar leik. Þá eru leikmenn að blekkja dómara eða áhorfendur til þess að halda að dómarinn sé að sleppa villum," segir í yfirlýsingu frá NBA. Leikmannasamtökin eru ekki ánægð með þessa breytingu og segjast hafa viljað vera með í ráðum. Margir leikmenn hafa aftur á móti stutt þessa breytingu og þar á meðal er Kobe Bryant. "Ég er hrifinn af þessu. Skammarlegur leikaraskapur er fáranlegur. Við þekkjum þetta allir. Vlade Divac byrjaði eiginlega á þessu í úrslitakeppninni gegn Shaq á sínum tíma og það virkaði fyrir hann," sagði Kobe. Þó svo flestir séu á því að þetta sé skref í rétta átt hefur heyrst gagnrýni á vægar sektir enda koma þær vart við pyngju leikmanna og alvöru afleiðingar eru í raun ekki fyrr en eftir ítrekuð brot.
NBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira