Lífið

Sigurjón digri vígður formlega

Stuðmenn og félagarnir Simmi og Jói gæddu sér á Sigurjóni digra.
Stuðmenn og félagarnir Simmi og Jói gæddu sér á Sigurjóni digra.
Það vantar ekki frumlegheitin og fjörið þegar þeir Simmi og Jói eiga í hlut en þeir vígðu nýjan hamborgara á Hamborgarafabrikkunni, í gær sem ber nafnið Sigurjón digri, og sömuleiðis eina frægustu tertu Íslandssögunnar, Astraltertu, sem aldrei hefur verið bökuð áður.

Skoða myndirnar hér.

Sigurjón digri og Astraltertan komu fyrir í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu eins og alþjóð veit en myndin er þrjátíu ára um þessar mundir. Eins og sjá má á myndunum mætti hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, og tók viðeigandi slagara við mikinn fögnuð matargesta Hamborgarafabrikkunnar.

Sindri Sindrason sjónvarpsmaður mætti á staðinn en vigslan verður sýnd í Íslandi í dag á Stöð 2 á mánudaginn kemur strax að loknum kvöldfréttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.