Tíska og hönnun

Jessie J krúnurakar sig fyrir gott málefni

Jessie J.
Jessie J.
Poppsöngkonan Jessie J hefur ákveðið að raka af sér allt hárið fyrir gott málefni og hún hefur ákveðið dagsetninguna.

Jessie sagði aðdáendum sínum á Twitter-síðu sinni að hún ætli að krúnuraka sig á Degi rauða nefsins í Englandi þann 1. mars á næsta ári.
"Fyrir ári sagðist ég ætla að krúnuraka mig fyrir gott málefni. Ég hef eytt miklum tíma í að tryggja það að þegar ég læt vaða að ég safni eins miklum pening og ég get fyrir gott málefni. Ég er líka búin að vera að bíða eftir rétta tímanum og rétta málefninu," skrifaði Jessie einnig og ætlar að láta lokkana fjúka í beinni útsendingu.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og eru aðdáendur stjörnunnar hæstánægðir með uppátækið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.