NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2012 09:15 Tony Parker og Tim Duncan. Mynd/AP
Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í San Antonio Spurs að vinna Los Angeles Clippers með 17 stiga mun, 105-88, og ná 2-0 forystu í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. San Antonio Spurs er þar með búið að vinna sextán leiki í röð, síðustu 10 leikina í deildarkeppninni og svo fyrstu sex leiki sína í úrslitakeppninni en auk þess að vinna tvo fyrstu leikina á móti Clippers þá sópaði liðið út Utah Jazz 4-0 í fyrstu umferðinni. Tim Duncan skoraði 18 stig fyrir San Antonio og Boris Diaw var með 16 stig. Duncan er í góðum gír sem skipir Spurs miklu máli. „Mér líður ótrúlega vel og betur en undanfarin fjögur eða fimm ár," sagði Tim Duncan eftir leikinn en hann er að elta fimmta meistaratitilinn sinn. Tony Parker var maður dagsins og setti tóninn fyrir sína menn. Báðir þjálfarar liðanna hrósuðu honum eftir leikinn. „Tony sá um þetta að mestu. Hann spilaði frábærlega varnarlega og stóð sig mjög vel," sagði Gregg Popovich en auk stiganna þá spilaði Parker góða vörn á Chris Paul sem tapaði meðal annars 8 boltum í leiknum. „Tony er búinn að eiga frábært ár. Það er erfitt að ráða við hann á opnum velli og hann er með mörg vopn. Við verðum samt að standa okkur betur á móti honum," sagði Vinny Del Negro, þjálfari Los Angeles Clippers. Blake Griffin skoraði mest fyrir Clippers eða 20 stig en hann tók bara eitt frákast í öllum leiknum. Chris Paul var með 10 stig og 5 stoðsendingar.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira