Verður liðið hans Jordans það lélegasta í sögu NBA deildarinnar? 18. apríl 2012 14:00 Paul Silas er þjálfari Charlotte Bobcats. AP
Charlotte Bobcats er á góðri leið með að slá met í NBA deildinni sem ekkert lið vill eiga. Bobcats, sem er í eigu Michael Jordan, er aðeins með 10,6% vinningshlutfall í deildarkeppninni í vetur og er það slakasti árangur allra tíma. Það eru aðeins sex leikir eftir hjá Charlotte Bobcats á leiktíðinni og ef liðið tapar þeim öllum þá slær það met sem er í eigu Philadelphia 76ers frá tímabilinu 1972-1973 þegar liðið var með aðeins 11% vinningshlutfall. Keppnistímabilið í NBA deildinni 2011-2012 er óvenjulegt þar sem að verkbann s.l. haust varð til þess að aðeins 66 leikir er á dagskrá hjá hverju liði á tímabilinu í stað 82. Vinningshlutfallið er samt sem áður staðreynd sem forráðamenn Charlotte og leikmenn liðsins geta ekki forðast. Matt Carroll leikmaður Charlotte sagði í viðtali við AP fréttastofuna að leikmenn liðsins vilji ekki eiga það á hættu að skrifa nýja kafla í sögu NBA deildarinnar. „Það vill enginn eiga þátt í því að vera hluti af lélegasta liði allra tíma í NBA deildinni. Við þurfum bara einn sigur og ég held að menn séu að átta sig á því að þetta getur gerst. Þegar fyrst var talað um þetta fyrir nokkrum vikum þá trúði því enginn að þetta gæti gerst," sagði Carroll. Charlotte er hinsvegar ekki líklegt til þess að breyta stöðu liðsins í kvöld þegar liðið mætir Chicago Bulls á heimavelli. Chicago er með besta vinningshlutfallið í deildinni 75% en Charlotte hefur tapað 17 leikjum í röð. Leikirnir sem Charlotte á eftir eru gegn:Chicago, Memphis, Sacramento, Washington, Orlando og New York.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira