NBA: LeBron með 41 stig í sigri Miami Heat Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 09:15 LeBron James. Mynd/AP
LeBron James var öflugur þegar Miami Heat tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta með sigri á Philadelphia 76ers í nótt. Kobe Bryant skoraði mikilvægan þrist í blálokin á sigri Los Angeles Lakers á New Jersey Nets, Orlando Magic tapaði fjórða leiknum í röð og San Antonio Spurs vann áttunda leikinn sinn í röð.LeBron James skoraði 41 stig og Mario Chalmers var með 19 stig þegar Miami Heat vann 99-93 sigur á Philadelphia 76ers en þetta var sextándi heimasigur liðsins í röð. James skoraði meðal annars 14 stig í röð hjá Miami í fjórða leikhlutanum en liðið lék án Dwyane Wade sem fékk högg á hné í leiknum á undan. Evan Turner skoraði 26 stig fyrir Philadelphia.Kobe Bryant var með 24 stig og skoraði mikilvægan þrist í blálokin þegar Los Angeles Lakers vann 91-87 heimasigur á New Jersey Nets. Pau Gasol var með 22 stig og 12 fráköst og Ramon Sessions skoraði 19 stig og gaf 11 stoðsendingar. Lakers er búið að vinna 11 af síðustu 15 leikjum. Deron Williams skoraði 20 stig fyrir Nets, Gerald Wallace skoraði 19 stig og Kris Humphries var með 18 stig og 15 fráköst.Danny Granger skoraði 14 af 27 stigum sínum í fjórða leikhluta þegar Indiana Pacers vann 112-104 sigur á New York Knicks. Paul George skoraði 18 stig fyrir Indiana en það dugði ekki New York að Carmelo Anthony var með 39 stig og 10 fráköst.Greg Monroe var með 22 stig og 11 fráköst þegar Detroit Pistons vann 102-95 sigur á Orlando Magic en Orlando lék án þeirra Dwight Howard, Jameer Nelson og Ryan Anderson og er nú búið að tapa fjórum leikjum í röð. Ben Gordon var með 18 stig hjá Detroit en Glen Davis skoraði mest fyrir Orlando eða 31 stig.Danny Green og Tony Parker voru báðir með 19 stig fyrir San Antonio Spurs sem vann léttan sigur á Cleveland Cavaliers 125-90. Cleveland lét Danny Green einmitt fara fyrr á þessu tímabili. San Antonio er nú búið að vinna átta leiki í röð en Cleveland var á sama tíma að tapa sínum áttunda leik í röð.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Toronto Raptors - Charlotte Bobcats 92-87 Cleveland Cavaliers - San Antonio Spurs 90-125 Indiana Pacers - New York Knicks 112-104 Miami Heat - Philadelphia 76Ers 99-93 Detroit Pistons - Orlando Magic 102-95 Memphis Grizzlies - Golden State Warriors 98-94 Sacramento Kings - Phoenix Suns 100-109 Los Angeles Lakers - New Jersey Nets 91-87 Staðan í NBA-deildinni:Á nba.com eða yahoo.com
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira