Viðskipti erlent

Spilavítiskóngurinn einn ríkasti maður heims

Sheldon Adelson.
Sheldon Adelson.
Valdamesti maðurinn í Las Vegas er á lista yfir 10 ríkustu menn Bandaríkjanna. Hann er 78 ára gamall og heitir Sheldon Adelson og eru eignir hans metnar á 25 milljarða dollara, eða sem nemur um 3.000 milljörðum króna. Það jafngildir tvöfaldri landsframleiðslu Íslands árlega.

Adelson þykir afar sérlundaður, og lætur ekkert stoppa sig ef hann vill framkvæma eitthvað. Hann segist í ítarlegu viðtali við nýjasta tölublað viðskiptatímaritsins Forbes, þrífast á áhættu og því að taka ákvarðanir sem séu óvæntar. Adelson er mikilvægasti stuðningsmaður Newt Gingrich, sem nú freistar þess að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í Í Bandaríkjunum í nóvember. „Það getur vel verið að ég styðji Gingrich um 10 milljónir (dollara) til viðbótar, eða 100 milljónir. Ég er ekkert að hugsa um hvað fólk er að segja um þetta. Ég ræð þessu sjálfur," segir Adelson í viðtali við Forbes. Hann hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að hafa styrkt Gingrich um 11 milljónir dollara, en það jafngildir um 0,04 prósent af eignum hans.

Adelseon hefur byggt veldi sitt upp á spilavítum, einkum stórum pókersölum í Las Vegas. Hann hefur einnig auðgast mikið á fasteignaviðskiptum í Las Vegas enda verið lengi að í fjárfestingum, eða í liðlega 40 ár.

Sjá má útdrátt úr viðtalinu við Adelson hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×