Viðskipti erlent

Hækkun á mörkuðum í Evrópu og Asíu

Nokkur hækkun hefur orðið á helstu mörkuðum í Evrópu í morgun eftir töluverða veislu á Asíumörkuðum í nótt.

Þannig hækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,3% í nótt og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 2,1%. Hækkanir í Evrópu í morgun eru á rólegri nótunum. FTSE vísitalan í London hefur hækkað um 0,2%, Dax í Frankfurt um tæpt prósent og Cac 40 vísitalan í París um 0,7%.

Svo virðist sem fjárfestar hafi ekki lengur miklar áhyggjur af örlögum Grikklands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×