LeBron og Kobe bestir í NBA-deildinni í janúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2012 13:30 LeBron James og Kobe Bryant. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James hjá Miami Heat og Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers hafa verið valdir bestu leikmenn NBA-deildarinnar í janúar, James í Austurdeildinni og Bryant í Vesturdeildinni. Fyrstu leikir tímabilsins í desember teljast einnig með. LeBron James og félagar í Miami Heat unnu 16 af 21 leik sínum í desember og janúar og James var með 29,2 stig, 8.3 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hann var einnig með 55,1 prósent skotnýtingu og 1,8 stolinn bolta að meðaltali í leik. James var með í tuttugu þessarra leikja og var stigahæstur í sextán þeirra. Hann skoraði sextán sinnum yfir 25 stig og ellefu sinnum braut hann 30 stiga múrinn. Kobe Bryant og félagar í Los Angeles Lakers unnu bara 13 af 22 leikjum sínum í desember og janúar en Bryant var með 30,0 stig, 6,1 fráköst og 5,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Bryant varð 1. janúar yngsti leikmaðurinn í sögunni til að skora 28 þúsund stig í deildinni og hann skoraði 48 stig í sigri á Phoenix Suns 10.janúar. Kobe náði því síðan að skora yfir 40 stig í fjórum leikjum í röð og það á aðeins fimm dögum. Aðrir sem komu til greina sem leikmenn mánaðarins voru: Joe Johnson og Josh Smith hjá Atlanta, Derrick Rose hjá Chicago, Kyrie Irving nýliði Cleveland, Shawn Marion hjá Dallas, Kyle Lowry hjá Houston, Roy Hibbert og Danny Granger hjá Indiana, Marc Gasol hjá Memphis, Deron Williams hjá New Jersey, Kevin Durant og Russell Westbrook hjá Oklahoma City og LaMarcus Aldridge hjá Portland.
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Valur - Njarðvík | Meistararnir á Hlíðarenda Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Sjá meira