Viðskipti erlent

Ljótustu skórnir seljast eins og heitar lummur

Ljótustu skór í heimi seljast eins og heitar lummur. Þetta eru crocs skór sem gerðir eru í plasti í mjög skærum litum.

Fyrirtækið sem framleiðir crocs í Kolaradó hefur tilkynnt að velta þeirra hafi numið einum milljarði dollara á síðasta ári eða um 124 milljörðum króna en crocs skór eru eina varan sem félagið framleiðir.

Þetta er verulega aukning frá árinu áður þegar veltan nam tæpum 800 milljónum dollara.

Meðal þeirra sem notað hafa crocs skó má nefna George Bush fyrrum Bandaríkjaforseta og Steven Tyler söngavara hljómsveitarinnar Areosmith.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×