Viðskipti erlent

Eitt af stærstu flugfélögum Spánar rambar á barmi gjaldþrots

Spanair, eitt af stærstu flugfélögum Spánar, hefur aflýst öllum flugferðum vegna mikillar óvissu um fjárhagslega framtíð fyrirtækisins. Spanair hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að glíma frá því að vél þess fórst í flugslysi fyrir fjórum árum.

Seint í gærkvöld gaf Spanair út tilkynningu að það rambaði á barmi gjaldþrots. AP fréttaveitan greinir frá því að sveitastjórnir á Spáni hafi ekki getað stutt fjárhagslega við fyrirtækið lengur og því hafi rekstrargrundvöllur þess brostið.

Árið 2008 fórst vél félagsins í alvarlegu flugslysi þegar hún tók á loft á leið til kanarí eyja, en eitt hundrað fimmtíu og fjórir farþegar létu þar lífið. Það var alvarlegasta flugslys á Spáni í tuttugu og fimm ár og hafði mikil áhrif á rekstur félagsins ásamt lausafjárkreppunni.

Flugfélagið bendir farþegum sínum á að fylgjast vel með á vefsíðu félagsins, en hún liggur niðri um þessar mundir. Haft er eftir þarlendum fjölmiðlum að þúsundir farþega séu nú strandaglópar víðsvegar um Evrópu. Þróunarráðuneytið á spáni hefur hins vegar skorað á félagið að standa við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum.

Spanair var með þrjátíu og sex vélar í sínum flota og flaug til nítján áfangastaða innanlands og tuttugu og fjögurra annarra borga í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×