Lífið

Gert Hof langar til að lýsa upp Svínafellsjökul

Gert Hof, einn frægasti samtímalistamaður Þjóðverjar, vill lýsa upp Svínafellsjökul til að vekja fólk til umhugsunar um hlýnun jarðar og áhrif hennar á vatn. Páll Ásgeir Davíðsson er framkvæmdastjóri verkefnisins, en grunnfjármögnun þess er langt á veg kominn.
Fréttablaðið/Vilhelm
Gert Hof, einn frægasti samtímalistamaður Þjóðverjar, vill lýsa upp Svínafellsjökul til að vekja fólk til umhugsunar um hlýnun jarðar og áhrif hennar á vatn. Páll Ásgeir Davíðsson er framkvæmdastjóri verkefnisins, en grunnfjármögnun þess er langt á veg kominn. Fréttablaðið/Vilhelm
Þýski listamaðurinn Gert Hof vill lýsa upp íslenskan jökul, annað hvort á næsta ári eða 2013. Framkvæmdastjóri verkefnisins segir öflug samtök í umhverfismálum koma að verkinu.

„Hann kolféll fyrir jöklinum, sem er náttúrulega epískur eins og grískt svið,“ segir Páll Ásgeir Davíðsson, en þýski listamaðurinn Gert Hof hyggst lýsa upp Svínafellsjökul, annað hvort næsta haust eða vorið 2013. Markmiðið er einfalt; að vekja fólk til umhugsunar um loftlagsbreytingar, áhrif þeirra á vatn og þar af leiðandi bráðnun jökla.

Gert Hof heimsótti Ísland í maí á síðasta ári eins og fram kom í Fréttablaðinu. Þá til að skoða sig um og líta á hentuga jökla. Fram kom í fréttinni að Snæfellsjökull kæmi sterklega til greina sem hentugur staður, Hof var ákaflega hrifinn af honum en niðurstaðan varð að lokum Svínafellsjökull í Vatnajökulsþjóðgarði.

Páll, sem er framkvæmdastjóri verkefnisins, segir að verið sé að vinna í að tryggja grunnfjármögnun verkefnisins og hann gerir sér vonir um að þeirri vinnu ljúki á allra næstu vikum. Meðal annarra sem koma að verkinu eru Bergljót Arnalds, sem er tónlistarstjóri verkefnisins, Northern Lights Energy, Saga Film og aðilar innan íslensku ferðaþjónustunnar. „Við höfum fengið til liðs við okkur öflug alþjóðleg samtök í umhverfismálum og sérfræðinga á heimsmælikvarða.“

Gert Hof er einn merkasti listamaður samtímans og verk hans ná til hundraða milljóna manna hverju sinni. Hann hefur lýst upp Rauða torgið í Moskvu og Akrópólishæðina í Aþenu og verkin vekja iðulega mikla athygli. „Hann telur að lýsing Svínafellsjökuls geti orðið sitt meistaraverk, þetta getur orðið ákaflega eftirminnileg vitundarvakning.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.