Tíska og hönnun

Jólaförðunin: Glæsileiki & jólagleði

Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir lesendum fallega jólaförðun.
Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir lesendum fallega jólaförðun. Fréttablaðið/HAG
Jólaböll og jólaboð eru fram undan hjá mörgum og gaman getur verið að klæðast sínu fínasta pússi og setja svolítinn lit á kinnarnar. Björg Alfreðsdóttir hjá MAC sýnir fallega jólaförðun sem allir ættu að geta leikið eftir áður en haldið er á jólaball.

„Ég byrja alltaf á því að undirbúa húðina vel til að jafna hana og minnka roða. Svo til að ná fram jafnari áferð notaði ég Clinique Repairwear Lazer Focus farða og svo True Bronze Sunkissed frá Clinique til þess að skyggja húðina svolítið og Snowglobe Highlight úr jólalínu MAC,“ útskýrir Björg.

Næst notaði hún Estée Lauder í Tender Petal fremst á kinnbeinin til að ná fram fersku og fallegu yfirbragði. Á augnlokin bar hún Paints Bare Canvas, Metal X augnskugga með nafninu Cyber og rauðan lit úr Saultry augnskuggapallettunni frá MAC.

„Á augnhvarmana notaði ég svartan blýant frá MAC sem heitir Graphblack og til að fá góða dýpt á augun toppaði ég þetta með Haute & Naughty Lash maskaranum frá MAC og setti svo augnhár númer 20 til að fá meira „kattarútlit“.“

Á varirnar fóru Prep + Prime Lip og Pro Longwear blýantur með nafninu Staunchly Stylish, varaliturinn Secret Kiss frá Estée Lauder og loks Patience, Please glossinn til að stækka þær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.