Shadow Creatures styðja við bakið á konum í afríku 16. desember 2011 20:00 Edda og Sólveig Ragna Guðmundsdætur hanna undir heitinu Shadow Creatures. Hluti af hverri seldri flík mun renna til Kríunnar, þróunarsamtaka í þágu kvenna í Afríku. fréttablaðið/daníel
Systurnar Edda og Sólveg Ragna Guðmundsdætur sem hanna undir nafninu Shadow Creatures hafa tekið höndum saman við Kríurnar, þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku. Hluti af hverri seldri flík frá systrunum mun renna til styrktar málefnum Kríanna. Edda og Sólveig Ragna hanna fallegar kvenmannsflíkur meðal annars úr silki og lífrænni bómull og hafa umhverfisvæna framleiðslu að leiðarljósi í hönnun sinni. Edda segir Kríurnar hafa haft samband við systurnar að fyrra bragði og þær ákveðið að leggja samtökunum lið enda séu baráttumál þeirra brýn. „Þetta eru ung samtök sem styðja með ýmsum ráðum við konur í Afríku og beita sér sérstaklega fyrir menntun og heilsu þeirra. Við tókum auðvitað mjög vel í bón þeirra enda er þetta verðugur málstaður og gaman að geta lagt honum lið.“ Ný lína frá Shadow Creatures kom nýlega í verslunina Kiosk við Laugaveg og inniheldur meðal annars fallega síðkjóla, klúta, buxur og boli. - sm
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira