Lífið

Mel Gibson faðir í níunda sinn

Mel Gibson er sagður hafa barnað bandaríska raunveruleikastjörnu. Hann á átta börn fyrir.
Mel Gibson er sagður hafa barnað bandaríska raunveruleikastjörnu. Hann á átta börn fyrir. nordicphotos/getty
Mel Gibson er sagður hafa barnað bandaríska raunveruleikastjörnu sem hann átti í stuttu sambandi við. Fyrir á Gibson átta börn, sjö með fyrrverandi eiginkonu sinni, Robyn Denise Moore, og eitt með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Oksönu Grigorievu.

Raunveruleikastjarnan Laura Bellizzi átti í stuttu sambandi með leikaranum, sem stóð yfir allt síðastliðið sumar.

„Laura er mjög leyndardómsfull og vill lítið segja um faðerni barnsins öðrum en sínum nánustu. Það er farið að sjást á henni og í kjölfarið vakna spurningar um faðernið," hafði Star Magazine eftir heimildarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.