Söng fyrir Norðmenn 8. nóvember 2011 14:15 Innlifun Það var töfrandi andrúmsloft í Sandvíka á hátíðinni þar sem Bergljót Arnalds frumflutti lag eftir sig. „
Það var virkilega sterk og falleg upplifun að koma þarna fram,“ segir söng- og leikkonan Bergljót Arnalds en hún frumflutti lag eftir sig á hátíðinni Hjertefred í Noregi á sunnudaginn fyrir þúsundir manna. Hátíðin er haldin árlega í Noregi í bænum Sandvika, rétt fyrir utan Ósló. Meginmarkmið hátíðarinnar er að minnast hinna látnu og var hátíðin ekki síst magnþrungin í ár vegna árásarinnar í Útey í sumar. Bergljót frumflutti lagið Hjartsláttur, sem hún byggir á hjartslætti, en hún vann lagið meðal annars með Bjarka útsetjara. Atriði Bergljótar vakti mikla athygli en hún kom siglandi á gömlum bát niður upplýsta á og var á forsíðu staðardagblaðsins daginn eftir og í sjónvarpsfréttum NRK um hátíðina. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég flyt sjálf mína eigin tónlist og var ég með mikinn fiðring í maganum,“ segir Bergljót. Bergljót fékk boð á hátíðina gegnum stofnanda hennar, Björg Þórhallsdóttur. Björg kom á hátíð Bergljótar, Kærleikar, í byrjun árs og bauð henni í kjölfarið að koma út og syngja. „Pabbi minn féll frá í byrjun árs og það er gott að gefa sér tíma í að syrgja. Það þekkja allir einhvern sem hefur fallið frá og maður hefur gott af því að staldra við í lífinu og minnast. Þetta var falleg kvöldstund og ótrúlega gaman hvað þetta tókst vel allt saman.“-áp
Lífið Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira