Tileinkar föður sínum plötuna 30. september 2011 12:00 ný plata Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út aðra sólóplötu sína.fréttablaðið/stefán
Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út sína aðra sólóplötu, sem nefnist Land míns föður. Hún er óður til Íslands og á henni eru lög Einars við texta nokkurra af þjóðarskáldunum, auk vel þekktra íslenskra þjóðlaga. „Ég bjó úti í Bandaríkjunum í níu ár og lærði frekar að meta þjóðlagaarfinn og íslenska músík við það beinlínis að búa erlendis. Taugin verður sterkari við fjarlægðina,“ segir Einar. Platan var tekin upp á aðeins þremur dögum og auk Einars spiluðu inn á hana Skúli Sverrisson, Óskar Guðjónsson, Eyþór Gunnarsson, Guðmundur Pétursson og Davíð Þór Jónsson. Söngvarar voru KK, Sigríður Thorlacius, Ragnar Bjarnason, Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafsson og Sigurður Guðmundsson. Einar tileinkar föður sínum, Árna Scheving, sem lést árið 2007, plötuna. „Ég steig mín fyrstu spor í bransanum með honum, þótt það hafi kannski meira verið í dansiballaformi. Hann var gríðarlega músíkalskur og það var mjög gott að bera undir hann hugmyndir þó að sýn okkar á músík hafi verið mjög ólík.“ Einar tileinkaði föður sínum einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin sem hann fékk fyrir síðustu plötu sína. Hann dó tveimur mánuðum eftir að hún kom út. Veglegur 32 blaðsíðna bæklingur fylgir með Land míns föður. Þar eru textar við lögin og gamlar ljósmyndir sem flestar voru teknar af Magnúsi Ólafssyni. „Mér fannst þessar myndir tóna svo vel við stemninguna á plötunni,“ segir Einar. - fb
Lífið Tónlist Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira