Lífið

Sleppur við fangelsið

Laus allra mála Leikarinn Nicolas Cage sleppur fyrir horn eftir að hafa verið handtekinn um miðjan apríl fyrir ölvun á almannafæri. Nordicphotos/getty
Laus allra mála Leikarinn Nicolas Cage sleppur fyrir horn eftir að hafa verið handtekinn um miðjan apríl fyrir ölvun á almannafæri. Nordicphotos/getty
Nu er komið í ljós að leikarinn Nicolas Cage sleppur við fangelsisvist eftir að hafa verið handtekinn fyrir ölvun á almannafæri í New Orleans um miðjan apríl.

Ekki er nóg með að Cage hafi verið ofurölvi heldur var hann einnig með dónaskap við vegfarendur og eiginkonu sína, hina kornungu Alice Kim.

Fjölmiðlafulltrúi leikarans segir að hjónin séu ánægð með að málinu sé lokið og að Cage ætli sér ekki að láta þetta hafa áhrif á vinnu sína, en hann er staddur í New Orleans við tökur á kvikmyndinni Medallion.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.