Tíska og hönnun

Fram undan í tískuheimi

Jimmy Choo er sívinsæll. Þetta árið verður glamúrinn ríkjandi en í tilefni af fimmtán ára afmæli hans voru settir á markað skór alsettir kristöllum.
Jimmy Choo er sívinsæll. Þetta árið verður glamúrinn ríkjandi en í tilefni af fimmtán ára afmæli hans voru settir á markað skór alsettir kristöllum.

Margir spá nú í tískuárið sem er fram undan.

Tískutímaritið Elle hefur tekið saman það helsta sem mun verða vinsælt á árinu í tískuheiminum.

Sarah Burton, nýr listrænn stjórnandi tískuhúss Alexanders McQueen, sló í gegn með vorlínu snni og því búist við miklu af henni á næstunni.

Ungstirni á borð við Willow Smith, tíu ára söngkonu og dóttur Wills nokkurs Smith, munu verða áberandi á árinu.

Skræpótt og stórt prent á flíkum verður áberandi. Spilar þar hin villtu dýr stóran þátt.

Heitir og skærir litir verða áberandi líkt og í töskum Matthews Williamson sem hann hannaði fyrir Bulgari.

Hárgreiðsla sem Scarlett Johanson skartar nú, verður heitasta greiðslan árið 2011, telja tískuspekúlantar Elle.

Margir tískuhönnuðir munu miða pilssídd rétt neðan við miðjan kálfa eins og var áberandi á tískusýningu Chloé, en Stella McCartney stendur að baki hönnuninni.
Leikkonan Chloë Sevigny er talin verða meira áberandi sem tískuhönnuður á árinu. Hún hannar undir merkjum Opening Ceremony.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.