Viðskipti erlent

Minni aukning í smásölu en búist var við

Wal Mart, er stærsta smásölufyrirtæki í heimi.
Wal Mart, er stærsta smásölufyrirtæki í heimi.
Smásala í Bandaríkjunum jókst ekki eins mikið og búist hafi verið við samkvæmt tölum sem birtar voru í morgun. Smásalan jókst um 0,2% en greinendur höfðu spá 0,5% aukningu, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá.

Á sama tíma í fyrra jókst sala í smásölu umtalsvert meira eða um 6,7% milli mánaða. Kaupmenn og forvarsmenn fyrirtækja sem eiga allt undir smásölu, eru þó vongóðir um að salan aukist mikið eftir því sem nær dregur jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×