Tvö mörk frá Cavani gerðu nánast út um möguleika Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2011 19:00 Mynd/AFP
Edison Cavani sýndi snilli sína í Napoli í kvöld þegar hann skoraði tvö mörk og tryggði Napoli gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Manchester City í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Níu leikja sigurganga Manchester City liðsins er þar með á enda og tapið fór langt með að gera út um vonir liðsins um að komast í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar. Bayern München er komið áfram en Napoli hefur eins stigs forskot á City fyrir lokaumferðina. Roberto Mancini og lærisveinar hans þurfa nú að treysta á það að vinna Bayern München í lokaleiknum og treysta jafnframt á það að Napoli nái ekki að vinna botnlið Villarreal sem hefur ekki fengið stig í riðlinum. Edison Cavani kom Napoli í 1-0 á 17. mínútu með skalla á nærstöng eftir hornspyrnu Ezequiel Lavezzi. Cavani fékk annað gott færi skömmu síðar og Napoli-liðið var með góð tök á leiknum. Mario Balotelli jafnaði leikinn á 33. mínútu með sínu níunda marki í síðustu tíu leikjum. Balotelli fylgdi þá á eftir skoti David Silva sem De Sanctis varði en markið kom eftir varnarmistök og nánast upp úr þurru. Edinson Cavani kom Napoli í 2-1 á 49. mínútu eftir frábæra sókn og sendingu frá Andrea Dossena. Mancheester City pressaði mikið í lok leiksins en tókst ekki að skora jöfnunarmark sem hefði gjörbreytt stöðunni í riðlinum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Í beinni: Ítalía - Ísland | Strákarnir leita hefnda Körfubolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Fleiri fréttir Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Í beinni: Newcastle - West Ham | Skjórarnir geta flogið upp um þrjú sæti Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Sjá meira