Viðskipti erlent

Barack Obama krefst aðgerða

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama forseti Bandaríkjanna krafðist þess í dag að þjóðhöfðingjar Evrópusambandsins gripu tafarlaust til aðgerða vegna skuldavanda á evrusvæðinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi Obama á G20 fundinum sem nú stendur yfir í Frakklandi.

"Við verðum að sjá til þess að aðgerðirnar hafa raunveruleg áhrif og komi í veg fyrir óþarfa tjón. Ráðaleysi er ekki valkostur," sagði Obama, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC.

Á fundinum minntist Obama meðal annars á að nákvæmari aðgerðaráætlun væri nauðsyn til þess að virkja alþjóðasamfélagið til þátttöku í björgunarsjóði ESB. Kínverjar hafa nú þegar gefið það út að þeir séu ekki tilbúnir að kaupa skuldabréf sjóðsins fyrr en að útlistað hafi verið með nákvæmari hætti hvernig sjóðurinn verður fjármagnaður og nýttur.

Allra augu eru nú á Grikklandi en mikill pólitískur óstöðugleiki er þar í landi um þessar mundir. Nær útilokað er talið að Grikkland geti grett skuldir sínar til baka sem eru á gjalddaga í desember nk., að því er greint var frá í Wall Street Journal í dag. Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Grikklands að evrusvæðinu, og aðgerðir landsins í ríkisfjármálum, er áformuð í desember nk. Erfitt er þó að segja til um hver þróun mála verður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×