Viðskipti erlent

Áhyggjur vegna Ítalíu magnast

Silvio Berlusconi.
Silvio Berlusconi.
Fulltrúar Seðlabanka Evrópu (ECB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa varað stjórnvöld á Ítalíu við því að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða í ríkisfjármálum þá gæti landið „endanlega misst trúverðugleika". Það þýddi að opinberir sjóðir, ekki síst ECB, myndu hætta kaupum á ítölskum ríkisskuldabréfum.

Í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC segir Yves Merch, sem er stjórnarmaður ECB í Lúxemborg, að nauðsynlegt væri að auka trúverðugleika landsins með raunhæfum aðgerðum í ríkisfjármálum. Óhjákvæmilegt væri að skera niður útgjöld og reyna að auka tekjur.

Ítalía getur varla endurfjármagnað skuldir sínar í augnablikinu vegna hás álags á vaxtakjör landsins. Þá hafa ítalskir bankar einnig átt í vandræðum með að endurfjármagna skuldir sínar, einkum eftir að lánshæfiseinkunnir þeirra voru lækkaðar í síðasta mánuði.

Það er svo til þess að auka enn á vanda landsins að pólitísk staða Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, er veik og jafnvel talið að hann muni láta af embætti innan skamms. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar enn hvað þau mál varðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×