Viðskipti erlent

Berlusconi hefur staðið af sér 50 vantrausttillögur

Magnús Halldórsson skrifar
Silvio Berlusconi brosir ekki svona breitt þessa dagana.
Silvio Berlusconi brosir ekki svona breitt þessa dagana.
Silvio Berlusconi er ekki óvanur vantrausttillögum. Fimmtíu sinnum hafa verið bornar upp slíkar tillögur í þinginu sem hann hefur staðið af sér, að því er segir á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC.

Framundan, eftir um klukkutíma, er nú ein mikilvægasta atkvæðagreiðsla sem ríkisstjórn Berlusconis hefur staðið frammi fyrir. Hún snýst um aðgerðir í ríkisfjármálum, niðurskurð og eignasölu þar helst. Almennt er litið svo á að pólitískir dagar Berlusconis séu taldir ef atkvæðagreiðslan fellur gegn vilja ríkisstjórnar hans.

Einn helsti bandamaður Berlusconis undanfarin misseri, Umberto Bossi, hefur nú opinberlega hvatt Berlusconi til þess að segja af sér. Bossi er reyndar ekki ókunnugur því að fara gegn Berlusconi, þrátt fyrir pólitískan vinskap þeirra í seinni tíð. Bossi fór gegn Berlusconi árið 1994 og er almennt álitinn hafa fellt fyrstu ríkisstjórn hans.

Efnahagsvandamál Ítalíu eru nú helsta áhyggjuefnið á evrusvæðinu. Ítalska hagkerfið er þriðja stærsta hagkerfi á svæðinu, á eftir því franska og þýska. Til samanburðar má nefna að gríska hagkerfið er aðeins um 2% af evrusvæðinu. Álag á tíu ára ríkisskuldabréf Ítalíu er nú 6,7%, sem er það hæsta í sögunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×