NBA-deilan: Eigendur og leikmenn aftur hættir að tala saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2011 09:00 Blake Girffin mun ekki troða á næstunni. Mynd/AP
Það fór ekki svo að langir og strangir samningafundir í NBA-deilunni skiluðu nýjum samningi því það slitnaði upp úr viðræðum eigenda NBA-liðanna og leikmannasamtakanna í gær eftir fimm tíma fund. Deiluaðilar voru þá búnir að tala saman í tæpa 30 tíma á þremur sólarhringum og það hafði lekið út að þeir væru að nálgast hvorn annan. Eftir að fundinum lauk í gær er hinsvegar enginn nýr samningafundur á dagskránni. David Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, var veikur í gær og kom ekki á fundinn en hann hafði hótað því að flauta af alla leiki fram að áramótum myndu samningar ekki nást í þessari viku. Það er líklega það næsta sem gerist að NBA fresti fleiri leikjum en þeim hundrað sem töpuðust þegar fyrstu tvær vikur tímabilsins voru afskrifaðar. Aðaldeilumálið er sem fyrr skipting á innkomu félaganna. Leikmenn höfðu fengið 57 prósent teknanna í gamla samningnum en eigendur vilja koma þeirri tölu niður í 50 prósent. Það fréttist í gær að leikmannasamtökin hafi lækkað sig úr 53 prósentum niður í 52.5 prósent en það þótti eigendunum ekki nóg.
NBA Mest lesið Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Körfubolti „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn Ramsdale mættur til Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Sjá meira