NBA deilan er enn í hnút, keppnistímabilið í uppnámi Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 5. október 2011 11:30 Derrick Rose leikmaður Chicago Bulls var MVP í NBA deildinni á síðasta tímabili. Það gæti orðið bið á því að hann leiki listiri sínar á parketinu vegna kjaradeilu NBA við leikmannasamtök deildarinnar. AP
Allt bendir til þess að næsta keppnistímabil í NBA deildinni í körfuknattleik sé í uppnámi. Ekkert þokast í deilum leikmanna og eigenda. Verkbann hefur staðið yfir í margar vikur. Engin niðurstaða fékkst í gær á löngum sáttafundi forráðamanna deildarinnar með talsmönnum leikmannasamtaka NBA. Búið er að fresta öllum æfinga – og sýningarleikjum deildarinnar í október. Ef ekkert gerist í deilunni fyrir næsta mánudag er ljóst að fresta þarf upphafi keppnistímabilsins um tvær vikur í það minnsta. Það eru miklar líkur á því að keppnistímabilið verði í stytt í vetur en það gerðist síðast 1998-1999 þegar hvert lið lék 50 deildarleiki í stað 82. Þekktir kappar á borð við Paul Pierce (Boston), Amare Stoudemire (NY Knicks) og Kobe Bryant (LA Lakers) mættu á fundinn í gær í New York. Alls voru 11 fulltrúar frá eigendum NBA liða á fundinum ásamt 11 fulltrúum frá leikmannasamtökum deildarinnar. Deilan snýst að mestu um skiptingu á tekjum deildarinnar. Á undanförnum árum hafa leikmenn fengið 57% af heildartekjum deildarinnar en David Stern og félagar hans í NBA deildinni vilja lækka þetta hlutfall niður í 50%. Í fyrsta tilboði NBA deildarinnar til leikmanna var þetta hlutfall 47%. Eigendur NBA liða hafa áhyggjur af rekstrinum á næstu árum en aðeins 8 lið af 30 skiluðu hagnaði á síðasta rekstrarári. David Stern sagði eftir fundinn í gær að ekki verið ástæða til þess að halda viðræðunum áfram þar sem að ágreiningsefnin væru of mörg.
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira