Mancini vill Tevez í burtu frá City Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. september 2011 22:13 Carlos Tevez gengur frá Allianz Arena í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, vill losna við Carlos Tevez frá félaginu eftir að sá síðarnefndi neitaði að koma inn á sem varamaður gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Mancini var afar óánægður með Tevez eftir leikinn í kvöld eins og áður hefur komið fram hér á Vísi. „Ef ég fæ einhverju ráðið fer hann frá félaginu,“ er haft eftir Mancini á fréttavef BBC. „Hvað mig varðar er hann búinn.“ „Hann neitaði að koma inn á. Það sem ég sagði við Tevez ætla ég að halda á milli okkar í liðinu en ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Carlos. Það er ég sem ákveð hvenær menn eiga að koma inn á og spila.“ „Þetta er í raun vonlausar aðstæður. Það skiptir máli að leikmenn hjálpi liðinu sínu. Þetta er mjög slæmt.“ „Það er alveg ljóst að leikmaður, sem fær mjög vel borgað frá Manchester City, getur ekki neitað því að spila fyrir félagið. Við munum ræða þetta mál við stjórnarformanninn á næstu dögum.“
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Carlos Tevez neitaði að koma inn á Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, staðfesti eftir leik liðsins gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld að Carlos Tevez hafi neitað að koma inn á sem varamaður í leiknum. Það er ólíklegt að hann spili aftur fyrir City úr þessu. 27. september 2011 21:15 Tevez: Reyni að gera mitt besta Carlos Tevez sagði í raun lítið um ástæður sínar fyrir því að hafa neitað að koma inn á sem varamaður í leik Manchester City gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann ítrekaði aðeins að hann væri óánægður hjá félaginu í viðtölum við fjölmiðlamenn eftir leikinn. 27. september 2011 21:52 Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Fleiri fréttir Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Sjá meira
Carlos Tevez neitaði að koma inn á Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, staðfesti eftir leik liðsins gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld að Carlos Tevez hafi neitað að koma inn á sem varamaður í leiknum. Það er ólíklegt að hann spili aftur fyrir City úr þessu. 27. september 2011 21:15
Tevez: Reyni að gera mitt besta Carlos Tevez sagði í raun lítið um ástæður sínar fyrir því að hafa neitað að koma inn á sem varamaður í leik Manchester City gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann ítrekaði aðeins að hann væri óánægður hjá félaginu í viðtölum við fjölmiðlamenn eftir leikinn. 27. september 2011 21:52