Van der Vaart: Var að vona að við myndum mæta Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2011 17:45 Rafael van der Vaart. Mynd/Nordic Photos/Getty
Rafael van der Vaart, núverandi leikmaður Tottenham og fyrrum leikmaður Real Madrid var ánægður með það að mæta sínum gömlu félögum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en það var dregið fyrr í dag. Hollendingurinn spilaði tvö tímabil með Real Madrid en fékk þó aldrei að njóta sín eins og hann hefur gert síðan að hann kom á White Hart Lane og fór að klæðast treyju Tottenham. „Ég var mjög ánægður með dráttinn," sagði Rafael van der Vaart í viðtali á heimasíðu Tottenham. „Ég var að vona að við myndum mæta Real því það væri frábært að fá að fara aftur til Madridar. Ég á marga vini þarna og það verður frábært að hitta þá alla á ný," sagði Van der Vaart. „Þetta er stór leikur og það er flott að fá seinni leikinn heima. Að mínu mati er Real stærsti klúbburinn í heimi þó að Barcelona sé með besta liðið í heimi í dag," sagði Van der Vaart. „Bernabeu er frábær völlur og glæsilegur leikvangur. Það komast 90 þúsund manns fyrir og það er stórkostleg tilfinning að spila þarna. Ég spilaði þarna í tvö ár og naut tímans þar. Það verður algjör draumur að koma þangað aftur," sagði Van der Vaart. „Það er enginn pressa á okkur. Við getum spilað okkar leik og við eigum möguleika á því að komast áfram," sagði Rafael van der Vaart að lokum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Sport Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Fleiri fréttir Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Sjá meira