Helena í úrvalslið riðilsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. mars 2011 09:30 Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir var valin í úrvalslið Mountain West-riðilsins í bandaríska háskólaboltanum í þriðja sinn á ferlinum í gær. Deildakeppninni er lokið og framundan er bæði úrslitahelgi Mountain West-riðilsins í Las Vegas um næstu helgi sem og hefðbundinnar úrslitakeppni NCAA-deildarinnar en óvíst er hvort að TCU fái sæti í henni. Helena og Emily Carter eru samherjar í TCU og komust báðar í fimm manna úrvalslið riðilsins. Athygli vekur að topplið riðilsins, BYU, á aðeins einn leikmann í fyrsta úrvalsliðinu en alls eru þrjú lið valin. TCU varð í öðru sæti og á tvo leikmenn í fyrsta úrvalsliðinu, rétt eins og Wyoming sem varð í þriðja sæti. Helena skoraði að meðaltali 13,8 stig í riðlinum auk þess sem hún tók 4,6 fráköst, gaf 4,7 stoðsendingar og stal boltanum 1,5 sinnum að meðaltali í leik. Samanlögð skotnýting hennar var 43,8 prósent en hún skoraði minnst tíu stig í tíu leikjum af sextán í deildakeppninni. Hún var á meðal tíu efstu í alls níu af tíu tölfræðiþáttum í riðlinum. Hún varð í áttunda sæti í stigaskorun, í fjórða sæti í stoðsendingum og þriðja sæti í stolnum boltum. Helena útskrifaðist úr skólanum fyrir jól og hefur því getað einbeitt sér að körfuboltanum eftir áramót. Hún er því á sínu síðasta tímabili með TCU og verður forvitnilegt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur að því loknu.
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Njarðvík | Meistararnir á Hlíðarenda Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Sjá meira