Viðskipti erlent

Jóni Ásgeiri stefnt fyrir dómstól í New York

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson eru báðir á meðal hinna stefndu. Mynd/ Anton.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson eru báðir á meðal hinna stefndu. Mynd/ Anton.
Skilanefnd Glitnis hefur stefnt sjö manns fyrir dómstól í New York vegna 2 milljarða dala kröfu. Upphæðin nemur um 260 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi bandaríkjadals í dag.

Hinir stefndu eru fyrrum aðaleigendur bankans, stjórnendur hans og stjórnendur fyrirtækja sem honum tengdust, að því er Reuters greinir frá. Þeir eru hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir, Pálmi Haraldsson, Þorsteinn Jónsson, Lárus Welding, Jón Sigurðsson og Hannes Smárason. Endurskoðunarfyrirtækinu PricewaterhouseCoopers er einnig stefnt.

Samkvæmt stefnunni eru hinir stefndu sakaðir um að hafa tekið fjármuni út úr bankanum og nýtt þá í eigin þágu og í þágu fyrirtækja sinna. Fjármagnið hafi meðal annars komið með sölu skuldabréfa á Manhattan og víðar í Bandaríkjunum.

Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hafði samband við Árna Tómasson, formann skilanefndar Glitnis í kvöld. Hann sagði að von væri á fréttatilkynningu frá skilanefndinni vegna málsins í fyrramálið og vildi ekki tjá sig nánar um það.






Tengdar fréttir

Bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti

„Til að fjármagna þessar greiðslur út úr bankanum hafi stefndu mjög stuðst við það fé sem Glitnir aflaði í Bandaríkjunum á árinu 2007, sér í lagi með sölu á skuldabréfum fyrir einn milljarð dala til fjárfesta í New York og víðar í Bandaríkjunum í september það ár. Þegar sú sala stóð yfir voru bandarískir fjárfestar blekktir með sviksamlegum hætti varðandi þá miklu áhættu sem Glitnir hafði tekið gagnvart Jóni Ásgeiri ásamt fyrirtækjum og einstaklingum í tengslum við hann."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×