Mikill plús fyrir Snæfell að hafa fengið Jeb Ivey Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2010 16:30 Jeb Ivey í leiknum þegar hann varð Íslandsmeistari með Njarðvík árið 2006.
Jeb Ivey hefur heldur betur komið sterkur inn í úrslitaeinvígið á móti Keflavík en Snæfellsliðið hefur unnið báða leikina síðan Ivey datt inn í hús rétt fyrir leik tvö. Snæfellingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Keflavík í Stykkishólmi í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Jeb Iver er hæstur í plús og mínus sem er nýr tölfræðiþáttur hjá KKÍ þar sem kemur fram hvernig liðinu gengur þegar leikmaðurinn er inn á vellinum. Snæfell hefur unnið þær 63 mínútur sem Jeb hefur spilað með 42 stiga mun. Ivey er aðeins á undan Martins Berkis en Snæfell hefur unnið þær 86 mínútur sem hann hefur spilað með 34 stiga mun. Hæstu Keflvíkingarnir eru Draelon Burns, sem er meiddur, og svo fyrirliðinn Jón Norðdal Hafsteinsson en Keflavík hefur unnið með 13 stigum þær 54 mínútur sem hann hefur spilað. Jeb Ivey hefur spilað samherja sína vel upp í þessum tveimur leikjum og hefur einbeitt sér að stjórna sóknarleiknum og spila góða vörn á Hörð Axel Vilhjálmsson, leikstjórnanda Keflavíkurliðsins. Jeb Ivey er með 12,0 stig og 7,5 stoðsendingar að meðaltali á 31,5 mínútum en hann var með 11 stoðsendingar á móti aðeins einum töpuðum bolta í sigrinum í Keflavík í síðasta leik.Hæsta plús og mínus í fyrstu þremur leikjum úrslitaeinvígis Keflavíkur og Snæfells: Jeb Ivey, Snæfell +42 Martins Berkis, Snæfell +34 Draelon Burns, Keflavík +22 Sigurður Þorvaldsson, Snæfell +20 Hlynur Bæringsson, Snæfell +13 Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík +13 Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfell +7 Páll Fannar Helgason, Snæfell +7
Dominos-deild karla Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira