Tíska og hönnun

E-Label í TopShop á Íslandi

Ásta Kristjánsdóttir og Heba Hallgrímsdóttir, eigendur E-Label, hlakka til samstarfsins við TopShop hér á landi.
Ásta Kristjánsdóttir og Heba Hallgrímsdóttir, eigendur E-Label, hlakka til samstarfsins við TopShop hér á landi.
Hönnunarmerkið E-Label verður fáanlegt í verslunum TopShop í Kringlunni og Smáralind frá og með deginum í dag. Í tilefni þess verður efnt til veislu í versluninni TopShop í Kringlunni klukkan 18.00 í kvöld og verður ný sumarlína E-Label frumsýnd við sama tækifæri.

„Samstarf okkar við TopShop í London hefur gengið vonum framar og þess vegna fannst okkur kjörið að hefja einnig samstarf við TopShop hér á landi," segir Ásta Kristjánsdóttir, annar eigenda E-Label. Að sögn Ástu hefur gengi E-Label í TopShop í London verið afar gott og hefur merkið alltaf náð þeim sölumarkmiðum sem því er sett. „Af öllum þeim hönnuðum sem fengu inn á sama tíma, er E-Label eina merkið sem er enn eftir og við erum að sjálfsögðu mjög stolt af því." Ásta segist einnig hafa verið að skoða þann möguleika að hefja sölu á vörum E-Label í Þýskalandi innan skamms, en það á eftir að skýrast betur síðar.

Í veislunni í kvöld verður sérstakur Volcano kjóll frá E-label frumsýndur, en hönnuðurinn Harpa Einarsdóttir hannaði línuna og var hún innblásin af gosinu í Eyjafjallajökli. Auk þess mun DJ Natalie leika ljúfa tóna, en til gamans má geta að hún er andlit nýrrar haustlínu E-label ásamt þremur öðrum föngulegum konum.

Veislan hefst klukkan 18.00 og stendur til klukkan 20.00. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.