Topp 50 atriði í eldgosinu 21. apríl 2010 13:31 Númer 39: Andlit eldgossins.
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sett hluta af heiminum á aðra hliðina. Ekki nóg með að Íslendingar þurfi að eiga við afleiðingar þess heldur hefur röskunin á flugsamgöngum haft víðtæk áhrif. Fjöldi skemmtikrafta aflýsti sýningum, stjórnmálamenn lentu í vandræðum og þar fram eftir götunum. Við tókum saman 50 fréttir sem hafa verið efst á baugi hjá Fréttablaðinu, Vísi og fleiri miðlum síðustu daga. Kíkið á myndasafnið. 1. Íslenskir jarðvísindamenn eru orðnir stjörnur á alþjóðavettvangi.2. Íslenskir bændur eru orðnir stjörnur á alþjóðavettvangi.4. Afmæli Danadrottningar fór í uppnám.5. En Dorrit fékk þá prinsessusæti á besta stað.7. Saturday Night Live byrjaði á brandara um gosið þar sem Björk sagði Ísland lítinn klett sem eyðilagði heiminn.8. Flugfélög tapa milljörðum króna.9. Frumsýning Iron Man 2 var færð til Los Angeles vegna þess að Robert Downey Jr., Scarlett Johansson og Gwyneth Paltrow komust ekki til London.10. Jens Stoltenbert, forsætisráðherra Noregs, stýrði landinu í nokkra daga með iPad í New York.12. Mjóróma söngvarinn Mika frestaði tónleikum sínum í Portúgal þar sem hann var fastur í París.13. Glamúrmódelið Katie Price og kærastinn hennar, klæðskiptingurinn og bardagamaðurinn Alex Reid, festust í Egyptalandi, en börnin biðu heima.14. Stjörnurnar í Barcelona ferðuðust í rútu í 14 tíma til Mílanó þar sem þær töpuðu fyrir Inter í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.15. Stjörnurnar í Liverpool ferðuðust með lest, rútu og flugvél til Madrid fyrir Meistaradeildarleik.17. Dilana Robichaux, vinkona Magna úr Rockstar, hætti við nokkra tónleika í Suður-Afríku.18. Bítillinn Sir Paul McCarteny situr í New York ásamt dóttur sinni Beatrice. Hún mun missa af fyrstu dögunum í skólanum.19. Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Sir Pauls, var í skíðaferðalagi í Austurríki en kemst hvorki lönd né strönd. Það er svosem hægt að festast á verri stað.20. Miley Cyrus getur ekki verið viðstödd frumsýningu kvikmyndar sinnar, The Last Song, sem verður í London í þessari viku.21. Skip úr flota hennar hátignar fluttu sólbrennda Tjalla í stórum stíl frá Spáni og heim.22. Demi Moore afboðaði blaðamannafundi í London vegna frumsýningu nýjustu myndar hennar, The Joneses.23. BMW lokaði framleiðslulínum vegna skorts á varahlutum.24. Blómaiðnaður í Kenýa lagðist á hliðina.25. Ávextir og grænmeti í Hollandi úldnaði í vörugeymslum.26. Cheryl Cole aflýsti tónleikum í Madríd.27. Fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson nagaði á sér neglurnar í Finnlandi. Hann festist þar á meðan frétt áratugarins var í fullum gangi heimafyrir.28. Fréttamaðurinn Ingólfur Bjarni Sigurðsson átti góðan sprett á þýskri sjónvarpsstöð en honum var kippt í útsendingu þegar gosið hófst.29. Kristján Bjarki Jónasson, formaður Félags bókaútgefanda, festist í Alicante og gat ekki verið talsmaður íslenskra bókmennta á bókamessu í London.30. Söngdívan Whitney Houston tók ferju á tónleika í Dublin og aftur yfir til London.31. Idol-stjarnan Adam Lambert frestaði Evróputúr. Hann ætlaði að kynna plötuna sína næstu daga og kannski taka lagið hér og þar.32. Hljómsveitin Sólstafir komst ekki að spila á JaJaJa-kvöldi í London sem ritstjóri tímaritsins Metal Hammer setti saman.33. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrástjóri Stöðvar 2, festist á kaupráðsstefnu sjónvarpsstöðva í Cannes ásamt starfsmönnum frá RÚV.35. Breska íshokkíliðið tók rútu í 26 tíma í æfingabúðir í Slóveníu.36. Heimsmethafinn og aðalstjarnan í hjólastólamaraþoni, Kurt Fearnly, er fastur heima í Ástralíu og kemst ekki í Londonmaraþonið um næstu helgi. Aðstandendur eru miður sín.37. Tökumaðurinn Ágúst Jakobsson tók 20 tíma leigubíl frá Barcelona til London. Umfangsmiklar tökur hans í Kína um helgina eru í uppnámi.38. Kynningarherferð sumarsmellsins Robin Hood er í uppnámi. Ridley Scott leikstýrir en Russell Crowe leikur aðalhlutverkið.39. Andlit eldgossins.40. Slatti hljómsveita komst ekki á Coachella-tónlistarhátíðina í Kaliforníu.41. Sólveig Arnardóttir leikkona festist við tökur á þýskum lögguþætti í Svíþjóð og sýningu á Eilífri óhamingju var frestað í Borgarleikhúsinu.42. Öskuskýið fæddist í netheimum og tjáir sig við umheiminn á Twitter.43. "We said cash not ash" og "hinsta ósk íslenska fjármálakerfisins var að dreifa öskunni yfir Evrópu" og allir hinir brandararnir.44. Nýtt hugtak, Skype-brúðkaup, varð til. Pör í Dubai og á Tælandi giftust á hótelum og ættingjar fylgdust með í gegnum Skype.45. Heimsbyggðinni þótti mjög kaldhæðnislegt að Keflavíkurflugvöllur var sá eini opni í álfunni.46. Breskir fjölmiðlar fylgdust rækilega með hópi skólastúlkna sem lentu í hringiðu goss og hlaupa.47. Barack Obama og fjölmargir aðrir þjóðarleiðtogar komust ekki í útför pólska forsetans Lech Kaczynski.48. Magnað var að fylgjast með því hvernig flugumferð í Evrópu minnkaði með hverjum deginum. Síðan flightradar24.com fór oft á hliðina vegna fjölda notenda.49. NBC, ITN, ABC, Sky News, BBC, Al Jaazera, ZDF og fjölmargar aðrar stöðvar sendu beint út frá Eyjafjallajökli.50. Nauðsyn mjólkurbíla var greinileg. Þegar þeir komust ekki yfir Markarfljótsbrúnna fylltist mjólkurtankarými býlanna og kýrnar héldu áfram að mjólka. Litlu munaði að hella þyrfti niður ógrynni af mjólk.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Lífið Menning Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira