Umfjöllun: Úti er best Henry Birgir Gunnarsson í DHL-höllinni skrifar 15. apríl 2010 21:00 Snæfellingar fagna sigri í kvöld. Mynd/Arnþór
Snæfell er komið í lokaúrslit Iceland Express-deildar karla eftir sigur á KR í rafmögnuðum oddaleik liðanna í DHL-höllinni í Vesturbænum. Lokatölur 83-93 fyrir Snæfell. Allir leikir liðanna enduðu með útisigri sem er ótrúleg staðreynd. Það var gjörsamlega troðfullt hús á leiknum og svakaleg stemning fyrir leik. Yfir 1.000 manns mættir þegar enn voru 45 mínútur í leik. Það var ekki að sjá á leikmönnum í upphafi leiks að taugaspennan væri yfirþyrmandi. Bæði lið hittu ágætlega í upphafi og sóknarleikurinn að renna ágætlega. Vörn Snæfells var á undan að smella saman og í kjölfarið náði liðið smá forskoti í leiknum. 9-15 þegar 4 mínútur voru eftir af leikhlutanum og KR tók leikhlé. Leikhlutinn leystist síðan upp í þriggja stiga skotkeppni þar sem bæði lið röðuðu niður þristum. Við það hélt Snæfell níu stiga forskot, 21-30 fyrir Snæfell. Góðu tíðindin fyrir KR var að Brynjar var loksins að hitta úr þriggja stiga skotunum sínum en Morgan Lewis komst ekki á blað. Hjá Snæfelli var Jón Ólafur heitur og Berkis hélt uppteknum hætti í DHL-höllinni og setti flest sín skot niður. KR gekk ekkert að finna lausnir til þess að stöðva sóknarleik Snæfells og það segir sína sögu hversu slök vörn KR-inga var í fyrri hálfleik að Snæfell skoraði 54 stig. Tek reyndar ekkert af Snæfell sem spilaði frábæran sóknarleik með Sigurð Þorvaldsson í fararbroddi en KR-ingar vissu ekkert hvernig þeir áttu að stöðva hann. Sóknarleikur KR var ekki alslæmur en varnarleikinn urðu þeir að laga til þess að eiga möguleika í síðari hálfleik. 43-54 fyrir Snæfell í leikhléi. KR-ingar mættu svo sannarlega ekki til síðari hálfleiks með neinar lausnir því Snæfell hélt áfram að yfirspila þá og bilið á milli liðanna breikkaði með hverri mínútu. Mótlætið fór í taugarnar á KR-ingum sem voru orðnir afar pirraðir. Í stöðunni 46-62 ákvað Páll Kolbeinsson, þjálfari KR, að taka leikhlé og róa sína menn og veitti ekki af. Það gekk allt á afturfótunum hjá KR og liðið var varla að setja niður vítaskot. Þegar aðeins einn leikhluti var eftir var Snæfell nánast búið að klára leikinn enda með 20 stiga forskot, 53-73. KR-ingar neituðu samt að gefast upp og komu með látum inn í fjórða leikhluta. Eftir rúma mínútu voru þeir búnir að minnka muninn í 13 stig, 60-73. Þá tók Ingi Þór, þjálfari Snæfells, leikhlé. Skarphéðinn Ingason var sjóðheitur í liði KR, setti niður tvær þriggja stiga körfur og munurinn tíu stig, 65-75. Það ætlaði allt um koll að keyra í DHL-höllinni, allir staðnir upp og þakið var við það rifna af húsinu er Morgan Lewis bauð upp á lygilega viðstöðulausa troðslu, 67-75 og rúmar 7 mínútur eftir. Hlynur Bæringsson var eini leikmaður Snæfells sem var ekki að brotna og hann skoraði tvær körfur sem róuðu aðeins taugar gestana. Morgan Lewis setti þá niður tvo þrista og minnkaði muninn í sex stig, 73-79. Þá var komið að Pavel að setja þrist. 76-79 og 5 mínútur eftir. Lewis minnkaði síðan muninn í eitt stig, 78-79, og ekki einn maður í húsinu sat lengur. Ég er ekki frá því að ég hafi séð mann í hjólastól standa upp. Ótrúleg stemning í takti við þessa lygilegu endurkomu KR-inga. Það fór gjörsamlega allt niður hjá KR á meðan Snæfell virtist ekki geta keypt körfu. Lokamínútur leiksins voru rafmagnaðar. Í stöðunni 80-82 virtust bæði lið vera að fara á taugum því þau gerðu klaufaleg mistök og voru í vandræðum með að skora. Þá braut Pálmi Freyr ísinn fyrir Snæfell og leikmenn liðsins náðu að halda ró sinni undir lokin og gekk vel á vítalínunni. Þar kláruðu þeir leikinn og Snæfell er verðskuldað komið í úrslit. Sigurður Þorvaldsson var magnaður í liði Snæfells í kvöld og KR-ingar vissu lengstum ekkert hvað þeir áttu að gera gegn honum. Hinn ódrepandi baráttuandi Hlyns smitaði út frá sér. Hann skoraði einnig góð stig og varði boltann á mikilvægum augnablikum. Martins Berkis vill eflaust spila alla sína leiki í DHL-höllinni því þar er hann ávallt magnaður. KR-liðið fór allt of seint í gang og átti ekki skilið að vinna að þessu sinni. Morgan og Brynjar of seinir í gang og Pavel náði aldrei neinum takti í sinn leik. Lykilmenn KR brugðust einfaldlega of oft í þessari rimmu og ekki bætti úr skák að Tommy Johnson var hreint grátlega lélegur og gerði flest annað en að vinna fyrir kaupinu sínu. Ég efast um að hann fái aftur vinnu á Íslandi. KR-Snæfell 83-93 (43-54) Stig KR: Morgan Lewis 17, Brynjar Þór Björnsson 15, Skarphéðinn Freyr Ingason 15, Pavel Ermolinskij 14 (13 fráköst, 7 stoðs.), Finnur Atli Magnússon 8, Tommy Johnson 5, Fannar Ólafsson 4, Jón Orri Kristjánsson 3, Darri Hilmarsson 2.Stig Snæfells: Sigurður Á. Þorvaldsson 28 (9 frák.), Martins Berkis 16, Hlynur Bæringsson 15 (9 fráköst, 3 varin skot), Jón Ólafur Jónsson 12, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9, Sean Burton 8 (8 stoðs.), Emil Þór Jóhannsson 5.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Enginn Íslendingur á heimsleikunum í fyrsta sinn í sautján ár Sport Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Körfubolti Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Handbolti Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Fótbolti Emma mjög ánægð með hvernig tekið var á eltihrelli hennar Sport Lofar að taka „Siu“ fagn Ronaldo ef hann skorar á móti Messi Fótbolti Halldór: Sundur spiluðum Fram Fótbolti Dramatísk endurkoma þýðir að Inter Miami þarf að mæta PSG Sport Fleiri fréttir Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Sjá meira
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport